Meira um okkur og svæðið
Þetta byrjaði allt í desember 1998 þegar við; Karen Rut Konráðsdóttir og Ólafur Birgir Vigfússon festum kaup á íbúðarhúsinu að Langanesvegi 12, kallað Lyngholt.
Húsið var á árum áður í eigu fjölskyldu Karenar, en foreldar móður hennar byggðu það árið 1959. Karen og Ólafur búa að Syðra-Álandi í Þistilfirði þar sem þau reka sauðfjárbú og eiga þau 3 dætur.
Nú rúmlega 25 árum síðar hefur reksturinn vafið upp á sig og þá aðallega síðustu árin. Í heildina er komið gistirými fyrir um 30 manns. Gistihúsin eru orðin 5 talsins og er þá nýjasta húsið talin með að Langanesvegi 10, kallað Bjarg.
Veitingahlutinn fer stækkandi en Lyngholt hefur undanfarin 14 ár eða svo séð um rekstur skólamötuneytisins fyrir bæði grunn- og leikskólann á Þórshöfn og er þar að öllu jöfnu eldað fyrir ca 90 börn & kennara í hádeginu.
HOLTIÐ KITCHEN BAR
Í ágúst 2024 opnuðum við svo veitingastað í félagsheimili staðarins sem ber nafnið Þórsver þar sem skólamötuneytið er einnig til húsa. Stefnan er að hafa staðinn opinn allt árið um kring en mismikið á hverjum tíma. Salurinn tekur að jafnaði um 70-80 manns í sæti en að hámarki um 150 manns á stærri viðburðum. Við bjóðum upp á ýmis konar veisluþjónustu, hafið samband fyrir frekari upplýsingar.
Rúbbinn
Við höfum bakað rúgbrauðið okkar síðan 2011 og byrjuðum við að selja brauðið í búðir í nágranna sveitarfélögunum árið 2023, brauðið er fáanlegt á Vopnafirði, Raufarhöfn, Kópaskeri og Húsavík. Framleiðslan hefur aukist jafnt og þétt og erum við að öllu jöfnu að baka í kringum 100 kg á viku.
Hafa samband:
Sími: 897 5064
E-mail: lyngholt@lyngholt.is
Við erum líka á facebook.
Í nágrenni Þórshafnar er ýmislegt hægt að skoða og upplifa. Nokkrar skemmtilegar gönguleiðir (merktar) eru í nágrenninu, bæði á Langanesi og í Þistilfirði.
Langanes teygist næstum 40 km út í hafið til norðausturs. Á nesinu skiptast á mýrar, holt og melar. Allgrösugt er þar víða og sauðlönd góð. Við Langanes hafa verið gjöful fiskimið frá fornu fari og fiskveiðar stundaðar af krafti. Þar er fjölbreytt fuglalíf. Mikil hlunnindi hafa þar löngum verið af reka, æðarvarpi og bjargfuglatekju. Sjaldgæfar jurtir vaxa á Langanesi svo sem flétta sem kallast klettakróða. Undir Skoruvíkurbjargi er klettadrangur sem heitir Stórikarl. Þar er mesta súluvarp á Norðurlandi og einnig verpa þar margar aðrar fuglategundir t.d. langvía, ryta og fýll.
Sauðaneshús ættu allir að heimsækja, þar er gamli tíminn alls ráðandi og margt fróðlegt að skoða. Ótal gamlir munir og myndir frá svæðinu. Húsið er eingöngu opið yfir sumartímann og þar er boðið upp á léttar veitingar.
Nánari upplýsingar um Sauðaneshúsið er að finna t.d. á Facebook (slá inn Sauðaneshús í leit)
Heimasíða fyrir húsið er í vinnslu.
Rauðanes í Þistilfirði er falleg og sérstæð náttúruperla. Um nesið er merkt gönguleið sem er um 7 km, liggur í hring og er auðfarin. Á nesinu er lyngmór allsráðandi en einnig er þar nokkurt graslendi.
Í byrjun gönguleiðarinnar er gengið fram á Háabjarg sem er um 60 metra hátt og í því sést hvernig berglögin hafa hlaðist hvert ofan á annað í aldanna rás. Útsýni af nesinu er mjög víðfeðmt.
Á www.lnb.is og www.nordurland.is er að finna nánari upplýsingar um svæðið, samgöngur og þjónustu.
































