Bjarg / 4 stúdíóíbúðir


Bjarg er nýjasta gistirýmið okkar, húsið var byggt árið 1932 en hefur núna verið gert upp og eru þar fjórar 25m2 stúdíóíbúðir með sér baðherbergi og sér inngangi. Þrjár íbúðir eru með hjónarúmi og einu einstaklingsrúmi, ein íbúð er með hjónarúmi og koju sem hentar fyrir fjölskyldur. Það er ketill & te í öllum íbúðunum en eldhúsaðstaðan er í Lyngholti sem er næsta hús við hliðina.
Gestir hafa einnig aðgang að þvottahúsi í Lyngholti.

Einfaldur morgunverður er innifalinn í gistingunni allt árið um kring og er aðeins í boði fyrir gesti Lyngholts, Hellis og Bjargs. Morgunverðurinn er sjálfsafgreiðsla í Lyngholti, við fyllum á eldhúsið á kvöldin og gestir bjarga sér sjálfir hvenær sem þeim hentar á bilinu kl. 08 – 11.