Lyngholt

Í Lyngholti eru 7 svefnherbergi og 3 baðherbergi.
Sjónvarp og þráðlaust net á öllum herbergjum og í stofu.
Fimm tveggja manna herbergi og tvö eins manns herbergi.
Á öllum baðherbergjum eru handklæði, bómullarskífur og hárblásari.

Einfaldur morgunverður er innifalinn í gistingunni allt árið um kring og er aðeins í boði fyrir gesti Lyngholts, Hellis og Bjargs. Morgunverðurinn er sjálfsafgreiðsla, við fyllum á eldhúsið á kvöldin og gestir bjarga sér sjálfir hvenær sem þeim hentar á bilinu kl. 08 – 11