HOLTIÐ KITCHEN BAR / LEIGA
GJALDSKRÁ VEGNA LEIGU & ÞRIFA Gildir frá 1. mars 2026
Félagsheimilið Þórsver, Langanesvegi 16, 680 Þórshöfn
Almenn leiga Án þrifa Með þrifum
Fundir / hálfur dagur eða minna kr. 25.000 40.000
Heill dagur v/ferming eða afmæli. kr. 70.000 120.000
(hægt að komast inn að skreyta kvöldið áður eða eftir samkomulagi)
m.v. færri en 70 manns
Heill dagur v/viðburðir eins og brúðkaup, árshátíð og þh. kr. 120.000 210.000
(hægt að komast inn að skreyta kvöldið áður eða eftir samkomulagi)
m.v. fleiri en 70 manns
Helgarleiga v/ættarmót, ráðstefna eða sambærilegt. kr. 160.000 250.000
Kaffi á fundi verð pr/kanna ca 2L kr. 3.500
Annað bakkelsi / veitingar skv. samkomulagi við Holtið
Allt leiguverð m.v. verð án viðveru starfsmanns.
Hægt er að leigja starfsmann með til að sinna t.d. uppvaski, bera fram veitingar ofl..
Gjald skv. samkomulagi
Leigjendum er skylt að þrífa eldhús þótt húsið sé leigt með þrifum, klára allt uppvask og ganga frá hlutum á sinn stað. Ef leigjendur nota auka borð og stóla þarf að fara með það aftur í geymslu.
Leigjendur bera ábyrgð á skemmdum eða tjóni sem kann að verða á leigutímanum.
Ákveðin félagasamtök í Langanesbyggð fá afnot af Þórsveri til fundahalda eða viðburða án endurgjalds í samráði við húsvörð. Taka skal fram áður en viðburður hefst hvort viðkomandi félagasamtök vilji sjá sjálf um frágang og þrif eða fá reikning frá Holtinu skv. þessari gjaldskrá.
Fundir / samkomur upp að 20 manns kr. 5.000
Fundir / samkomur 20 – 60 manns kr. 15.000
Fundir / samkomur 60 manns + kr. 30.000
(með samkomu er átt við t.d. spilakvöld, bingó og þh..)
Dansleikir eða aðrar sambærilegar samkomur kr. 90.000
Í þeim tilfellum þar sem Holtið selur veitingar á viðburðinum skal skipta þrifakostnaði til helminga.